Sameiningarkosningar - vöfflukaffi í Tryggvabúð

Sameiningarkosningar - vöfflukaffi í Tryggvabúð skrifaði Ólafur Björnsson - 20.10.2019
22:10
Kosið verður um sameiningu Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðarhrepps og Seyðisfjarðarkaupstaðar laugardaginn 26. október. Af því tilefni er vakin athygli á eftirfarandi:
Miðvikudaginn 23. október munu fulltrúar sveitarfélagsins í sameiningarnefnd sitja fyrir svörum í vöfflukaffinu í Tryggvabúð frá kl. 15:00 – 18:00. Íbúar eru hvattir til að kíkja við og taka þátt í uppbyggilegum umræðum.