Múlaþing hlutskarpast

Múlaþing hlutskarpast skrifaði Ólafur Björnsson - 01.07.2020
14:07
Nafnið Múlaþing fékk flest atkvæði, bæði í fyrsta sæti og samanlagt hjá þeim íbúum Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar sem tóku þátt í nafnakönnun fyrir nýtt sameinað sveitarfélag samhliða forsetakosningunum um helgina.
Á kjörskrá voru 3618 og þar af greiddu 2232 atkvæði eða 62%. Öllum íbúum sveitarfélaganna 16 ára og eldri var gefinn kostur á að taka þátt í valinu um helgina.
Sjá alla fréttina á www.austurfrett.is