Lóa - nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar

Lóa - nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar
Greta Mjöll Samúelsdóttir skrifaði 01.03.2021 - 22:03Lóa - nýsköpunarsjóður landsbyggðarinnar
Opið fyrir umsóknir í Lóu - nýjan nýsköpunarsjóð landsbyggðarinnar - í fyrsta sinn!
Umsóknarfrestur til 22. mars.
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.
Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.
Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.