Í nóvember

Við höfum gert ýmislegt í nóvember hér í leikskólanum. Við héldum upp á daga myrkurs þar sem við tókum fyrir himinngeiminn og veðrið. Börnin á Kríudeild unnu verkefni með hnettina og norðurljósin en börnin á Krummadeild unnu verkefni með veðrið, rigningu og snjó. Þessi verkefni voru svo til sýnis í gestavikunni.
Hnettir í geimnum
Norðurljósin
Snjókornin
Rigningin
Áður höfðu börnin á Kríudeild unnið verkefni tengd hafinu og voru þau líka til sýnis á Kríudeild og kom einn afinn færandi hendi með hluti úr hafinu.
Kórall og skeljar
Fiskar í hafinu
Dagur íslenskrar tungu var á laugardegi og héldum við upp á hann á föstudeginum. Búið var að kjósa fallegasta orð íslenskrar tungu: Ljósmóðir og ákváðu börnin á Kríudeild að kynna sér það betur. Þau teiknuðu svo myndir af ljósmóður.
Myndir af ljósmæðrum og fingraþulan
Ljósmóðir
Börnin á Krummadeild höfðu hins vegar verið að æfa fingraþuluna og elstu börnin teiknuðu myndir tengdar henni.
Fingraþulan
Síðan kom snjór og höfum við verið dugleg að fara út af renna í brekkunni hjá leikskólanum.
út að renna
Kíkið í myndaalbúmið okkar sem er fullt af nýjum myndum úr starfi leikskólans
ÞS