Djúpavogsskóli auglýsir eftir kennara í smíði og hönnun

Djúpavogsskóli starfar í takt við hugmyndafræði Cittáslow og er mikil áhersla lögð á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin mörg fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í skapandi vinnu. Skólinn er í mikilli þróun og á næsta skólaári verður áherslan meðal annars á teymis-og útikennslu,grenndarnám, núvitund og nýskapandivinnu.
Djúpavogsskóli auglýsir eftir kennara í hönnun og smíði. Í haust opnar nýbygging við skólanns sem hýsir m.a. nýja aðstöðu fyrir kennslu í hönnun og smíði. Framtíðarsýn skólans á þróun kennsluhátta í greininni fylgir stefnu um eflingu nýsköpunarí skólanum.
Menntun og kröfur um hæfni:
- Kennsluréttindi með áherslu á hönnun og smíði.
- Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum, hafa gott vald á íslenskri tungu, vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og vera tilbúnir að vinna eftir stefnu skólans.
- Umsókn sendistá skolastjori@djupivogur.is
Laun greiðast skv. kjarasamningi KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nánari upplýsingar um störfin veitir Signý Óskarsdóttir skólastjóri Djúpavogsskóla, skolastjori@djupivogur.is. Umsóknarfrestur fyrir bæði störfin er til 29. júní 2020.