Foreldrahandbók

Foreldrahandbók

Foreldrahandbók Bjarkatúns er afhent foreldrum þeirra barna sem hefja vistun í leikskólanum.  Hún er upplýsingarit fyrir foreldra um það helsta sem viðkemur leikskólanum.

Leikskólinn Bjarkatún starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla frá 1999

Samkvæmt lögum nr. 78/1994 bera sveitarfélag megin ábyrgð á rekstri leikskóla.  Menntamálaráðuneytið mótar uppeldisstefnu leikskóla og sér um að fram fari mat á leikskólastarfi.  Leikskóli er ekki skyldunám og hefur því nokkra sérstöðu sem fyrsta skólastigið.

Aðalnámskrá leikskóla er sett af menntamálaráðherra með sama hætti og reglugerðir og skulu leikskólakennarar og rekstraraðili taka mið af henni.  Hún lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf.

Aðalnámskrá leikskóla er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstörf í leikskólum og á að mynda sveigjanlegan starfsramma.  Á grundvelli þessa leiðarvísis á sérhver leikskóli að gera eigin skólanámskrá.

Rekstaraðili

Djúpavogshreppur er rekstaraðili Bjarkatúns.  Leikskólinn  heyrir undir Skólanefnd Djúpavogshrepps og Sveitarstjóra.  Sími skrifstofu Djúpavogshrepps er 478-8288.

 Leikskólinn Bjarkatún

Leikskólinn er tveggja deilda, yngri deild með nemendur frá eins árs til þriggja ára og eldri deild með nemendur frá þriggja ára til sex ára.

Fjarvistir

Foreldrar eru beðnir um að láta starfsfólk vita um allar breytingar á mætingu barna, t.d. vegna veikinda eða annars.

Máltíðir

Morgunmatur er kl.8:15-8:45 og er ýmst boðið upp á morgunkorn eða hafragraut.  Ávaxtatími er milli morgunmats og hádegisverðar. Í hádeginu er boðið upp á venjulegan íslenskan heimilismat og kemur maturinn frá Við voginn.  Í síðdegishressingu er boðið upp á brauð, álegg og mjólk. 

Í öllum máltíðum er reynt að hafa matinn sem hollastan, boðið verður upp á ferskt grænmeti og ávexti með máltíðum.  Reynt verður að takmarka hvítan sykur og hvítt hveiti, þannig að börnin fái sætuna úr öðru eins og ávextum og að brauð sé úr heilhveiti.

Veikindi

Leikskólinn er ætlaður heilbrigðum börnum.  Við höfum ekki aðstöðu til að annast sjúk börn.  Í leikskóla er alltaf meiri hætta á smiti og útbreiðslu algengra umgangssjúkdóma.  Fái barn smitandi sjúkdóm verður það að dvelja heima, þar til smithætt er liðin hjá.  Er þetta nauðsynleg ráðstöfun til að forðast útbreiðslu sjúkdóma í leikskólanum og sjálfsögð tillitsemi við önnur börn.  Ef barn veikist á meðan það er í leikskólanum er hringt í viðkomandi foreldri og það látið sækja barnið enda líður því illa. 

Starfsfólk leikskólans má ekki gefa börnunum lyf og foreldrar eru beðnir um að halda lyfjagjöfum fyrir utan leikskólann.

Barn má vera inni í 2 daga eftir hitaveikindi að beiðni foreldra.  

Slys

Ef barn slasast í leikskólanum  er haft samband við foreldri og bregst starfsfólkið við hverju tilfelli fyrir sig eftir bestu vitund. 

Klæðnaður

Nauðsynlegt er að klæða börnin þægilega og eftir veðri.  Allir eiga að vera með aukaföt geymd inn á deildum í hólfi barnsins þar.  Nauðsynlegt er að merkja allan fatnað barnanna, útiföt, regnföt, skó, stígvél og aukaföt.  Vel merktur fatnaður týnist síður.  Gott er að börnin hafi inniskó.

Afmæli

Börnin gera sér og öðrum glaðan dag á afmælum.  Gott er að foreldrar hafi samráð um þetta við deildarstjóra.

Mikilvægar  upplýsingar

Opnunar og lokunartími

Leikskólinn opnar kl. 8:00 og er tekið á móti börnunum á báðum deildum leikskólans.  Leikskólinn lokar kl. 16:00.  Hægt er að kaupa 15 mín. fyrir og eftir vistunartíma barnsins og er sótt um það hjá leikskólastjóra.

Dvalartími

Við upphaf leikskólavistar er gerður skriflegur samningur við foreldra um dvalartíma barnsins.  Við biðjum foreldra um að virða þennan samning, því fjöldi starfsmanna fer eftir fjölda barna á hverjum tíma.   

Vistun barnsins

Hægt er að gera breytingu á dvalarsamningi með mánaðar fyrirvara og miðast við 1. hvers mánaðar.

 

Viðtalstímar

Hægt er að ná í leikskólastjóra á vinnutíma hans eða frá kl. 8:00 til 16:00.  Deildarstjórar eru með auglýstan viðtalstíma  og símatíma sem gott er að nýta til upplýsinga eða fyrirspurna vegna barnsins.  Foreldrar eru beðnir  virða frítíma starfsfólksins.

Heilsársstarf

Frjáls leikur og skapandi starf.  Mestur tími af dagskipulaginu er leiktími sem ætlaður er fyrir frjálsan leik, bæði úti og inni.  En frjálsi leikurinn er eitt aðalstarf barnsins í leikskólanum og við reynum að gera honum góð skil svo að barnið fái útrás fyrir sköpunargleðina.  Um leið og fer að birta og hlýna í veðri þá erum við miklu meira úti.

Vettvangsferðir

Reglulega er farið í vettvangsferðir í nágrenni leikskólans.  Í ferðunum kynnast börnin umhverfinu, náttúrunni og staðháttum á Djúpavogi.  Á vorin er farið í sveitaferð og fara elstu nemendur leikskólans í útskriftarferð. 

Samverustundir

Á hverjum degi eru samverustundir.  Þar eru sungin lög, lesnar sögur og margvísleg mál rædd.  Þessar stundir gegna stóru hlutverki varðandi félagsþroska og málörvun.  Barnið lærir að hlusta og tjá sig.

Hvíld

Í hvíldinni er lögð áhersla á að eiga notalega stund.  Börnin liggja á dýnum og þau yngstu sofna.  Yngstu börnin hlusta gjarnan á þögnina en eldri börnin hlusta á sögur eða ævintýri. 

Fataklefinn

Þar eru börnin hvött til að klæða sig sjálf, eftir getu og aldri.  Þar er undir sjálfshjálp, samhjálp og tillitsemi.  Því er svo mikilvægt að börnin séu í góðum og einföldum fötum.  Markmið okkar er að þegar barn er á síðasta ári sínu í leikskólanum geti það klætt sig sjálft í útifatnaðinn.

Vetrarstarf

Hópastarf

Í hópastarfi er börnunum skipt í hópa eftir aldri og reynt að hafa hópana eins aldurshreina og mögulegt er.  Börnin fara í hópastarf á morgnanna og byrjar það kl. 9:00 alla morgna.  Í hópastarfi læra börnin að vinna í hóp, samvinnu og virðingu fyrir öðrum.  Boðið er upp á einingakubba og holukubba til skiptis, Listakrók, tónslist, lífsleikni, hreyfingu og könnunarleik.   

0. bekkjarstarf

Er undirbúningur elstu nemenda fyrir grunnskólagönguna.  Gott samstarf er milli grunnskólans og leikskólans.  Farið er í reglulegar heimsóknir milli skólanna og börnin fá námsefni sem undirbýr þau fyrir það sem koma skal.

Foreldrafélag

Við leikskólann er starfandi foreldrafélag.  Þegar barn hefur dvöl í leikskólanum ganga foreldrar sjálfkrafa í félagið.  Foreldrafélagið gefur börnum leikskólans jólagjöf og sumargjöf auk þess sem foreldrafélagið sér um jólaföndur og sumarhátíð leikskólans en hún er haldin síðasta opnunardag fyrir sumarfrí.  Til að standa straum af kosnaði er innheimt árgjald í félagið, 3000 kr., sem skiptist í tvö tímabil, haust og vor.  Sendur er innborgunarseðill til foreldra þegar barnið hefur leikskólagöngu sína. 

 

Upplýsingatöflur

Hvor deild fyrir sig hefur upplýsingatöflu inn á sinni deild.  Á töflunni er upplýsingum komið á framfæri til foreldra barna um það sem búið er að vera að gera yfir daginn sem og skilaboð fyrir næstu daga.  Einnig er upplýsingatafla við inngang/útgang leikskólans þar sem matseðill dagsins er skrifaður sem og upplýsingum sem varða leikskólann. 

Opið hús

Á vorin er opið hús þar sem afrakstur vetrarstarfsins er til sýnis.

Barninu fylgt inn á deild

Góð foreldrasamvinna er mikilvægur þáttur í starfsemi hvers leikskóla.  Lögð er áhersla á góð dagleg samskipti þegar foreldrar koma með og sækja börn sín.  Þess vegna er mikilvægt að barninu sé fylgt inn á sína deild og starfsmaður látinn vita þegar barn er sótt.  Þetta er ekki síður mikilvægt þegar komið er með börnin eða þau sótt úti í garði.

Hverjir mega sækja barnið

Látið vita ef einhver annar en foreldri sækir barnið.   Það er alfarið á ábyrgð foreldra hver sækir barnið en ekki er leyfilegt að senda barn heim með yngra barni en 12 ára.

Afmælisboðskort

Í Bjarkatúni er sú regla að ekki er leyfilegt að setja afmælisboðskort í hólf barnanna.  Foreldrar eru beðnir um að bjóða í afmæli barna sinna fyrir utan leikskólatíma.

Aðlögun

 Aðlögun er sá tími sem foreldrar eru með börnunum sínum í upphafi dvalar.  Þar er hornsteinn lagður að öryggi barnanna og samastarfi heimilis og leikskóla.  Mikilvægt er að góð samvinna takist strax milli foreldra og starfsfólks.  Þegar barnið byrjar í leikskóla er nauðsynlegt að hafa í huga þær breytingar sem það hefur í för með sér fyrir barnið.  Það þarf að aðlagast nýju umhverfi, kynnasta starfsfólki og börnum sem fyrirr eru, læra að vera í hóp, venjast dagskipulaginu o.fl. Við skiptum aðlöguninni í þrennt.

Einkaviðtal.  Foreldrar koma án barns til leikskólastjóra, gengið er frá dvalarsamningi og foreldrar fá afhenta handbók leikskólans.  Þegar viðtalinu lýkur hitta foreldrar deildarstjóra á þeirri deild sem barnið byrjar á og mun hann kynna foreldrum húsnæði, aðbúnað og helstu starfsemi.

Aðlögun barns.  Það er einstaklingsbundið hve langan tíma það tekur fyrir hvert barn að aðlagast, yngra barn þarf oftar lengri aðlögun en það eldra.  Foreldrar skulu gera ráð fyrir 5-10 dögum til aðlögunar, sem skipulögð er með samkomulagi foreldra og deildarstjóra.   Við hvetjum foreldra til að nota tímann vel til að kynnast starseminni sem best.

Aðlögun milli deilda.  Þegar barn flyst milli deilda er aðlögunin í höndum starfsfólks, en foreldri mun koma í viðtal við viðkomandi deildarstjóra.

Foreldrasamstarf

Gott foreldrasamstarf er mikilvægur þáttur í starfsemi hvers leikskóla og reynum við að leggja okkur fram við að koma til móts við þarfir foreldra eins og mögulegt er.  Við höfum sameiginlegt markmið sem er almenn vellíðan og þroski barnsins.  Við leggjum áherslu á góð og dagleg samskipti þegar foreldrar koma með og sækja börnin sín og þið eru velkomin inn á deildir.  Foreldrafundir eru a.m.k. Einu sinni á ári, að hausti, þar sem skipulag og markmið leikskólans eru  kynnt.  Foreldraviðtöl eru minnst einu sinni á ári, yfirleitt í mars þar sem foreldrum gefst kostur á að fræðast um gengi barnsins síns í leikskólanum.  Eins geta foreldrar alltaf óskað eftir viðtali þegar þeir vilja.  Gagnkvæmur trúnaður er milli foreldra og starfsfólks er forsenda þess að barninu líði vel.  Daglegar upplýsingar um barnið heima og í leiksólanum eru mjög nauðsynlegar.  Mikilvægt er að foreldrar láti vita þegar um breytingar er að ræða á högum barns.

Reglur leikskólans Bjarkatúns

  1. Leikskólinn er opinn frá kl. 7:45 til 16:15. 
  2. Leikskólinn er ætlaður fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 6 ára.
  3. Þau börn sem hafa rétt til dvalar verða að eiga lögheimili í Djúpavogshreppi
  4. Sækja þarf um dvöl á leikskólanum á þar tilgerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra.
  5. Hægt er að sækja um dvalarpláss fyrir barn hafi það náð 6 mánaða aldri.  Hafni foreldri/forráðamaður plássi þegar það býðst færist barnið aftast á biðlista.
  6. Gjöld skulu greidd 1.-10. hvers mánaðar fyrir líðandi mánuð.  Vanskil á dvalargjöldum varða uppsögn á dvalarplássi.  Dragist greiðsla í 2 mánuði fá foreldrar viðvörun um að missa pláss frá og með næstu mánaðarmótum, berist ekki greiðsla.
  7. Til að halda dvalarplássi, sem ekki er nýtt t.d. vegna sumarleyfa, verður að greiða það fyrirfram.
  8. Uppsagnarfrestur á dvöl er 1 mánuður og skal það gert á þar til gerðu eyðublaði sem hægt er að fá á skrifstofu leikskólastjóra.
  9. Börnum sem verða 6. ára á árinu er gefinn kostur á að vera fram að sumarleyfi leikskólans  .
  10. Leikskólinn lokar í 1 mánuð á ári vegna sumarleyfis.  Lokað er 15 júlí og opnað aftur 16 ágúst ár hvert.
  11. Aðlögunartími barns er áætlaður 5 dagar.
  12. Óheimilt er að senda barn eitt í leikskólann eða skilja það eftir án þess að hafa samband við starfsfólk leikskolans.  Þátta á einnig við þegar barn er sótt.  Ef aðrir en foreldri/forráðamaður sækir barn í leikskólann þarf að láta starfsfólk vita af því.
  13. Ekki er leyfilegt að senda barn heim af leikskólanum með yngra barni en 12 ára. 
  14. Í leikskólanum fá börnin morgunverð, hádegisverð, síðdegishressingu og ávaxtatíma
  15. Barn skal hafa góðan útifatnað sem og  auka inniföt í tösku eða geymdan á salernisaðstöðu deildar.  Merkja skal allan fatnað og skó barnsins. 
  16. Ekki eru sérstakir “dótadagar” í leikskólanum.  Barni er leyfilegt að koma með eitt leikfang sem kemst fyrir í hólfi barnsins í fataklefa.  Leikskólinn ber ekki ábyrgð á leikföngum, bókum eða öðru sem barnið kemur með.

Starfsfólk Bjarkatúns hefur kínverskt máltæki að leiðarljósi en það er:

Segðu mér það

Ég gleymi því

Sýndu mér það

Ég man það.

Leyfðu mér að fást við það

Þá skil ég það.

smþmffl
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30