Um skólann

Djúpavogsskóli er einsetinn heildstæður grunnskóli með tæplega 60 nemendur í grunnskóla, úr dreifbýli og þéttbýli Djúpavogshrepps. Grunnskólinn er hluti af stærri einingu, þ.e. 1. ágúst 2011 voru grunn-.leik- og tónskólinn sameinaðir í einn skóla.  Í grunnskólanum er lögð mikil áhersla á samkennslu, samvinnu og þverfaglega vinnu nemenda og kennara. Mikil áhersla er lögð á að nýta hið stórkostlega umhverfi sem skólinn er staðsettur í, bæði við leik og störf.

Mikil samvinna er milli skólans, Umf. Neista, tónskólans og Djúpavogshrepps. Nemendur mæta í skólann kl. 8:05 að morgni og hafa lokið íþrótta- og tónlistarnámi að stærstum hluta kl. 15:00. Nemendum úr dreifbýli er ekið í skólann að morgni og þeir síðan sóttir kl. 15:00 mánudaga og föstudaga en 15:40 þriðjudaga - fimmtudaga. Þá er sveitarfélagið í samstarfi við Hótel Framtíð og býður upp á niðurgreiðslu á heitum máltíðum í hádeginu á sanngjörnu verði.

Í vetur verður áfram lögð sérstök áhersla á grenndarkennslu og umhverfiskennslu við skólann

Grunnskóli Djúpavogs er Grænfánaskóli.

smþmffl
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31