Við höfnina í Gleðivík hefur verið komið fyrir glæsilegu listaverki eftir listamanninn Sigurð Guðmundsson. Listaverkið samanstendur af 34 eggjum jafnmargra fugla sem verpa í Djúpavogshreppi. Eggin eru úr granít , innflutt frá Kína og fylgja sömu lögun og eggin sem þau líkja eftir. Eggin er öll merkt með þeim fugli sem þau líkja eftir, bæði á íslensku og ensku. Eitt egg er stærst, en það er egg lómsins sem hefur verið valinn einkennisfugl fyrir svæðið.
Listaverkið er í góðu göngufæri frá þorpinu en frá miðju þorpsins er um 900 metrar í Gleðivík.
Verkið var vígt þann 14. ágúst 2009. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá undirbúningi, vígsludeginum svo og af listaverkinu sjálfu.
 Eggin komu í þessum trékössum alla leið frá starfstöð listamannsins í Kína
 Egill vandar sig við að koma fyrsta egginu á stöpulinn sinn
 Bryndís Reynisdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi með Sigurði listamanni við fyrsta eggið (lundaeggið)
 Það tóku margar röskar hendur þátt í uppsetningunni og gekk verkið vonum framar
 Hér er stóra lómseggið á leiðinni á stallinn, starfsmenn áhaldahússins vanda til verka
 Og svo var eggið stóra híft á síðasta stöpulinn

Sigurður Guðmundsson og kona hans Ineke stilla sér stolt upp við lómseggið

Á vígsludaginn, Andrés Skúlason oddviti og listamaðurinn Sigurður Guðmundsson afhjúpa verkið
 Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri heiðrar hjónin á vígsludegi
 Og færir þeim tvær myndir að gjöf
 Listamaðurinn flytur ávarp í tilefni dagsins
 Svo er spjallað um listina milli atriða
 Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri og Hlíf Herbjörnsdóttir taka sig vel út við egg skógarþrastarins
 Svo gengu menn með 200 m löngu listaverkinu og skoðuðu hvert egg fyrir sig
 Ingimar Sveinsson og listamaðurinn á góðu spjalli
 Svo var grillað á eftir
 Meira grill
 Andrés Skúlason oddviti ásamt listamanninum við egg óðinshanans
 Ineke og Sigurður bregða á leik við egg steindepilsins
 Listamaðurinn og steindepilseggið
 Horft yfir höfnina og listaverkið ofan af lýsistanknum
 Eggin ólík að lit og formi
 Egg skógarþrastarins
 Lómseggið í forgrunni
 Eggin skarta sínu fegursta við Gleðivíkina
 Strandafjöllin eru flott í bakgrunni eggjanna
 Sigurður og Ineke alsæl að vígsludegi loknum úti á svölum í Himnaríki ( nafn á heimili listamannsins)

|