![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Þjónusta og verslun |
| • Afþreying |
| • Menning |
| • Eggin í Gleðivík |
| • Ferðafélag Djúpavogs |
| • Kort |
| • Kynningarefni |
| • Myndasafn |
| • Hafa samband |
| • English version |
| 16.05.2012 - Nýr ferðamálafulltrúi |
Nýr ferða- og menningarmálafulltrúi er tekinn til starfa. Sá heitir Ugnius Hervar Didziokas og hefur verið ráðinn tímabundið, eða til ársloka, í ljósi þess að enn hefur ekki verið formlega gengið frá hvort og þá með hvaða hætti sameinaðar stoðstofnanir á Austurlandi, Austurbrú, muni koma að ráðningu nýs fulltrúa. Ugnius útskrifaðist með BA gráðu í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2007, framhaldsgráðu í þróunarfræðum frá sama skóla 2009 og mun ljúka meistaranámi í mannfræði frá HÍ nú í vor. Ugnius hefur mikla reynslu af störfum í ferðaþjónustu. Hann hefur starfað á Hótel Framtíð, hjá Papeyjarferðum og Hótel Sögu Radisson SAS auk þess sem hann starfaði á skemmtiferðaskipinu Her Majesty Queen Elisabeth II. Hægt er að ná í Ugnius í síma 478-8288 og hann er með netfangið ugnius@djupivogur.is. Sveitarstjóri |













