![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| • Forsíða |
| • Þjónusta og verslun |
| • Afþreying |
| • Menning |
| • Eggin í Gleðivík |
| • Ferðafélag Djúpavogs |
| • Kort |
| • Kynningarefni |
| • Myndasafn |
| • Hafa samband |
| • English version |
Forsíða
Þú ert hér: Fréttir
| 17.02.2012 - Öxi 2012 - Göngu og hlaupahelgi fjölskyldunnar |
Djúpavogshreppur í samstarfi við Umf. Neista og fyrirtæki í sveitarfélaginu ætlar að standa fyrir „Öxi 2012 - Göngu- og hlaupahelgi fjölskyldunnar" 30. júní og 1. júlí í sumar. Aðalgrein helgarinnar er þríþraut þar sem keppt verður í sjósundi 750m (synt af Staðareyri suður yfir Berufjörð), hjólað 13 km (inn Berufjarðardalinn og upp á Öxi) og hlaupið 19 km (út í Fossárdal að Eyjólfsstöðum) og hjólað þaðan 18 km á Djúpavog. Einnig verða skipulögð styttri hlaup og gönguferðir við allra hæfi. Nánari upplýsingar síðar. |













