![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
ÖXI 2012 - GÖNGU- OG HLAUPAHELGI FJÖLSKYLDUNNAR
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur 29. júní kl. 20:00 Ferðafélag Djúpavogs verður með stutta kynningargönguferð um bæinn og næsta nágrenni. Mæting við Geysi (ráðhús) kl. 20:00.
Laugardagur 30. júní kl. 10:00 Þríþraut: Þrír aðilar geta keppt saman, þá þannig að einn syndir, einn hjólar og einn hleypur. Samanlagður tími keppenda í greinunum ræður úrslitum. Keppnisnúmer verða afhent við upphaf sundsins. Keppendum er skylt að synda í blautbúningi og er búningsaðstaða til staðar að loknu sundi. Athugið að nota verður sama reiðhjól á báðum vegalengdum og mun keppnisstjórn sjá um flutning. Boðið verður upp á drykki við lok sundsins, á Merkjahrygg, við bæinn Eyjólfsstaði og við lok keppni. Keppendur fá síðan hressingu og frítt í sund eftir keppnina við íþróttahúsið á Djúpavogi . Keppnisgjald er 3.500 kr. og er skráning hafin á oxi2012@djupivogur.is. Innifalið í keppnisgjaldi er hressing, aðgangur að sundlaug og íþróttahúsi auk þess sem keppendur fá bol keppninnar. Keppendur þurfa að skrá sig fyrir fimmtudaginn 10. júní nk. Allar upplýsingar eru veittar á oxi2012@djupivogur.is.
Hefst við Íþróttahúsið á Djúpavogi kl. 18:00. Gengið verður út Vörðuna sem leið liggur með sjónum út í Hvítasand. Frá Hvítasandi með ströndinni út í Hvaley. Frá Hvaley að Sandey, skoðaður hellirinn í Sandey. Frá Sandey er haldið að flugbrautinni og að íþróttahúsinu þar sem gangan endar. Um er að ræða 2 ½ til 3ja tíma göngu. Gangan er fyrir fólk á öllum aldri. Markmið er að sem flestir verði í gúmmískóm eins og forfeður okkar þegar þeir gættu að fé sínu sem hélt sig á þessu svæði. Frítt er í gönguna og ekki þarf að skrá sig. Sundlaug Djúpavogs verður opin til miðnættis eftir göngu og er göngufólki boðið ókeypis í sund.
Sunnudagur, 1. júlí 2012 Tásutölt Hefst kl. 10:00 úti á Söndum við enda flugbrautarinnar. Ræst er í hlaupið við Langhólma. Hlaupið er tásunum einum saman, "berfættur" Boðið er upp á tvær vegalengdir: Tásutölt er fyrir alla fjölskylduna og verða verðlaun afhent fyrir fjölmennustu fjölskylduna, yngsta barnið og elsta þátttakandann. Verðlaun verða afhent í sundlaug Djúpavogs eftir göngu. Frítt er í Tásutöltið og ekki þarf að skrá sig sérstaklega. Keppendur og aðstandendur fá frítt í sundlaug Djúpavogs á eftir. |
| Veðurstöðin Öxi kl. 07:20:00 | |
| Hiti: | 2.3 °C |
| Vindátt: | V |
| Vindhraði: | 3.2 m/sek |
| Vindhviður: | 3.6 m/sek |
| Umferð: | |
| Síðustu 10.mín: | 0 |
| Frá miðnætti: | 5 |
| Veðurstöðin Papey kl.07:00:00 | |
| Hiti: | °C |
| Vindátt: | |
| Vindhraði: | m/sek |
| Vindhviður: | m/sek |
| Veðurstöðin Teigarhorn kl.07:00:00 | |
| Hiti: | 5,0 °C |
| Vindátt: | A |
| Vindhraði: | 1 m/sek |
| Vindhviður: | 2 m/sek |
| Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.07:00:00 | |
| Hiti: | 4,9 °C |
| Vindátt: | A |
| Vindhraði: | 1 m/sek |
| Vindhviður: | 3 m/sek |
| Flóð og Fjara: 24.5.2013 | |
| 02:33 | Hæð: 2.02 m |
| 08:39 | Hæð: 0.4 m |
| 15:01 | Hæð: 2.32 m |
| 21:18 | Hæð: 0.35 m |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|

















