2004
IV. 14. apríl 2004

 

Sveitarstjórn Djúpavogshrepps:  Fundargerð  14. 04. 2004

 

Fundur var haldinn í sveitarstjórn Djúpavogshrepps miðvikud. 14. apríl 2004 kl. 16:00. Fundarstaður: Ráðhús Djúpavogshrepps, Geysir.

Mættir voru: Tryggvi Gunnlaugsson, Guðmundur Valur Gunnarsson, Andrés Skúlason, Signý Óskarsdóttir og Bjarney B. Ríkarðsdóttir. Einnig sat fundinn Bj. Hafþór Guðmundsson, sveitarstjóri. Tryggvi stjórnaði fundi.

Dagskrá:

1.        Fundur með fulltrúum Skógræktarfélags DPV v/ girðingamála o.fl.

Á fundinn mættu Ragnhildur Garðarsdóttir, form. og Anna Sigrún Gunnlaugsdóttir, gjaldkeri Skógræktarfélagsins. Farið var yfir tillögur Skarphéðins Smára Þórhallssonar um ný ræktunarsvæði og möguleika á girðingum. Fyrir liggur að sveitarfélagið mun styrkja Skógræktarfélagið um kr. 200 þús. á þessu ári og áformar hið síðarnefnda að nýta það fjármagn til að girða ný ræktunarsvæði. Í framhaldi af umræðum um málið var ákv. að fela sveitarstjóra að hlutast til um frágang samnings milli aðila um nýtingu svæðisins við Merki og heimild til handa Skógræktarfélaginu að girða það strax í vor.

2.        Fundargerðir:

a)         AFU 17.03. 2004. Vegna liðar 2 staðfestir sveitarstjórn - í ljósi þess að styrkur að fjárhæð kr. 300.000.- fékkst hjá Menningarráði Austurlands v/ fuglasafns í Búð 3 - að verja allt að sömu fjárhæð úr sveitarsjóði til framkvæmda. Fjármögnun vísað til EFJ-2004. Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

b)         LBN (landbúnaðarnefnd) 01.04. 2004. Hafliði Sævarsson, form. LBN sat þennan hluta fundarins. Vegna liðar 2, “vegagerð” samþ. sveitarstjórn að fela sveitarstjóra að fylgja eftir erindi til Vegagerðarinnar um fjármagn til viðhalds safnvega í sveitarfélaginu. Forgangsverkefni verði safnvegir heim að Bragðavöllum og Hamarsseli. Vegna liðar 3, “fjallskil” kynnti sveitarstjóri að hann og form. LBN myndu vinna áætlun um kostnað við framkvæmdir vegna fjárrétta við Hof og Múla og leggja síðar fyrir sveitarstjórn. Sveitarstjórn fellst á tillögu LBN um fyrirkomulag fjallskila á miðströnd Berufjarðar og felur nefndinni að skipuleggja þau með öðrum fjallskilum. Vegna liðar 4, “girðingamál” felur sveitarstjórn sveitarstjóra að hlutast til um að Vegagerðin ljúki frágangi  veggirðinga á mið- og útströnd Berufjarðar. Einnig verði í samráði við Vegagerðina farið yfir skyldur sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar um útektir og greiðslur v/ viðhalds á girðingum meðfram þjóðvegi 1, sem viðurkenndar hafa verið af Vegagerðinni, sbr. ábendingu Herberts Hjörleifssonar þar um. Vegna liðar 5, “greiðslur fyrir refa- og minkaveiðar” varð mikil umræða um tillögur LBN, en auk fundarg. LBN, lá fyrir fundinum

Niðurstaðan varð sú að greiðslur vegna refa- og minkaveiða í Djúpavogshreppi verði frá 15. maí 2004 sem hér greinir, en skýrt tekið fram að því er treyst að ríkið yfirtaki þetta verkefni að fullu eigi síðar en árið 2005:

  Refur hl.dýr Refur grendýr   Refur við æti  Yrðl Akstur  Tímak Minkur
Djúpavogshreppur 14.000 kr. 14.000 kr. 14.000 kr.  7.000 kr.   0 kr. 0 kr.   3.000 kr.

Hvað varðar hvolpafullar læður, veiddar eftir 15. apríl verði greitt fyrir ígildi 4ra yrðlinga.

Vegna tilf. veiða verði einungis gr. kr. 3.500 fyrir refaskott en kr. 3.000 fyrir minkaskott.

Að öðru leyti verði byggt á reglum, sem giltu fyrir árið 2003, hvað varðar upplýsingar um greni o.fl., nema að gerð verði krafa til ráðinna veiðimanna að merkja með GPS punktum öll greni, auk mynda af þeim. Auk þess verði hækkaðar greiðslur fyrir GPS punkta vegna nýrra grenja í kr. 2.500.-

Ennfremur var samþykkt að fækka ráðnum veiðimönnum árið 2004 í 3, en þeir hafi heimild til að ráða sér nafngreinda aðstoðarmenn. Vegna minkaveiða verði ráðnir 2 veiðimenn. Ákv. var að auglýsa eftir veiðimönnum til veiða beggja framangreindra tegunda.

Form. LBN og sveitarstjóra verði að öðru leyti falið að útfæra samninga við veiðimenn með hliðsjón af samningum annars staðar frá.

Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

a)         BNL (byggingarnefnd leikskóla) 01.04. 2004. Vegna liðar 2), tillögu BNL um stærð nýs leikskóla ákveður sveitarstjórn að hann skuli verða að hámarki 260 m2. Vegna liðar 3), um aðkomu að nýjum leikskóla ákveður sveitarstjórn að fela sveitarstjóra að láta Verkfræðistofuna Hönnun hf. hanna veg að honum frá Hammersminni í samráði við Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt FAÍ. Boðað verði til kynningarfundar með íbúum í Hammersminni vegna framkvæmdanna. Vegna liðar 4, um val á arkitekt, felur sveitarstjórn sveitarstjóra að hafa samband við arkitektastofur, sem í fundargerðinni eru nefndar og óska eftir þeim upplýsingum, sem þar er rætt um.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.

b)         Félagsmálaráð Suðurfjarða, 42. og 43 fundur. Fundarg. lagðar fram til kynningar.

c)         HAUST 45./14. fundur 31.03. 2004 og 46./15. fundur 01.04. 2004. Fundarg. lagðar fram til kynningar.

d)         Markaðsstofa Austurlands, aðalfundur 30.03. 2004. Fundarg. lögð fram til kynningar.

e)         Ferðamálasamtök Austurlands, aðalf. 30.03. 2004. Fundarg. lögð fram til kynningar.

2.        Atvinnumál.

a)         Svarbréf Kers hf. dags. 5. apríl 2004 v/ sölu Gautavíkur og Festar og athugasemdir sveitarstjóra dags. 7. apríl 2004 f.h. sveitarstjórnar við það. Farið var yfir stöðu mála og athugasemdirnar, sem unnar voru í samráði við sveitarstjórn.

b)         Ákvörðun um borgarafund v/ atvinnumála o.fl. Ákveðið að halda borgarafund eigi síðar en 28. apríl, enda liggi á þeim tíma fyrir þær upplýsingar um framtíð fiskimjöls-verksmiðjunnar, sem sveitarstjórn telur nauðsynlegar. Á hann verði m.a. boðið fulltrúum þess fyrirtækis, sem tengist sölu eigna Festar og Gautavíkur og þess fyrirtækis, sem kæmi til með að fara með eignir Gautavíkur.

c)         Þróunarstofa Austurlands. Kynning á starfsemi Þr.Aust.; “Áherzlur í þróun og rekstri”. Lagt fram til kynningar. Form. AFU og sveitarstjóri gerðu ennfr. grein fyrir fundi með talsmönnum Þr.Aust. á Djúpavogi 2 apríl 2004.

3.        Erindi og bréf:

a)         Landbúnaðarnefnd Alþingis, dags. 01.04. 2004 varðandi umsagnir um frv. til laga um jarðalag (783. mál) og frv. til ábúðarlaga (782. mál). Ákveðið að gefa ekki umsögn og vísa þess í stað til umsagnar Samb. ísl. sveitarfélaga.

b)         Húsfriðunarnefnd, dags. 10.03. 2004. Tilk. um 500 þús kr. styrk v/ Faktorshússins. Í framhaldi af þessari niðurstöðu var samþ. að velja á næsta fundi sveitarstjórnar hönnuð til að hafa umsjón með endurbyggingu hússins og nýta það fjármagn, sem til ráðstöfunar er, til að vinna að undirbúningi verksins.

c)         Menningarráð Austurlands, dags. 04.03 2004 varðandi afgr. styrkumsóknar vegna áforma um skráningu sögulegra heimilda úr Djúpavogshreppi. Sveitarstjóra falið að senda inn nýja umsókn að ári.

d)         Menningarráð Austurlands, dags. 30. 03. 2004: Aðalfundarboð 4 maí 2004. Samþ. að kjósa Erlu Ingimundardóttur sem aðalmann og Berglind Einarsdóttur til vara.

e)         Framkvæmdanefnd búvörusamninga, dags. 11.03. 2004 varðandi eftirlit með gæðahandbók. Í erindinu kemur fram að nefndin hefur einhliða og án samráðs við sveitarfélögin ákveðið að greidd verði föst upphæð vegna vinnu búfjáreftirlitsmanna við eftirlit með skráningu bænda í gæðahandbók. Sveitarstjórn gagnrýnir, hvernig staðið var að því að taka þessa einhliða ákvörðun og upphæð þá, sem greiða á og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir við SSA og SÍS.

f)          Skipulagsstofnun, dags, 02.04. 2004 varðandi kostnaðarþátttöku v/ aðalskipulags-gerðar. Lagt fram til kynningar.

g)         Leið ehf., (marz 2004) varðandi könnun FVS.HÍ. um afstöðu til vegtolla yfir Öxi o.fl. Lagt fram til kynningar.

4.        Háhraðatengingar.

Fyrir fundinum lágu samningsdrög frá eMax ehf. í framhaldi af talsmönnum fyrirtækisins með heimamönnum. Einnig lágu fyrir upplýsingar um þau mismununandi kjör, sem  “Síminn.is” virðist gera einstökum viðskiptavinum eftir svæðum. Snæbjörn Sigurðarson sat fundinn undir þessum lið, en hann hefur leitt vinnu heimamanna að undanförnu við að leita leiða til að komast inn á “háhraðabrautina”. Kynnti hann stöðu mála. Að loknum nokkrum umræðum var ákveðið að fresta málinu til næsta fundar.

5.        Leiga á “Fiskmarkaðshúsinu”.

Kynnt og tekin afstaða til tilboðs frá Salar Islandica um leigu á húsinu frá 1. maí 2004. Sveitarstjóra falið að gera SI gagntilboð. Honum jafnframt veitt heimild til að ganga frá leigusamningi ef samkomulag næst milli aðila.

6.        Skýrsla sveitarstjóra:

a)         Sveitarstjóri lagði fram samkomulag v/ skipan sameiginlegrar almannavarnarnefndar á starfssvæði Sýslumannsins á Eskifirði, sem hann undirritaði á fundi 14. apríl 2004 með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Sveitarstjórn lýsir ánægju með samkomulagið og staðfestir  það.

b)         Sveitarstjóri kynnti stöðu mála varðandi pöntun á tæki til að geisla neyzluvatn. Málið er unnið í samráði við Verkfræðistofuna Hönnun hf. sem mælir með því að gengið verði til viðskipta við fyrirtækið Elixír á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

c)         Tjaldsvæðismál / Miðhús. Fyrir fundinum lágu drög að kostnaðaráætlun vegna nauðsynlegra framkvæmda við að breyta húsinu í þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. Ákv. að ganga til samninga við Austverk um breytingarnar. Fjármögnun vísað til EFJ-2004. Sveitarstjóra veitt heimild til að vinna að málinu í samráði við form. AFU.

d)         Sparkvellir KSÍ. Málið kynnt. Sveitarstjóra falið að vinna að málinu með það að markmiði að velli verði komið fyrir SA við Grunnskólann árið 2005.

e)         Lögð fram til kynningar “Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs”, unnin af UST.

Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 20:30.

Fundargerðin, sem færð var í tölvu, lesin upp, staðfest, prentuð út og síðan undirrituð.

Bj. Hafþór Guðmundsson, fundarritari.


Til baka
Veðrið í dag
Veðurstöðin Öxi kl. 00:30:00
Hiti:1.5 °C
Vindátt:VNV
Vindhraði:3.1 m/sek
Vindhviður:4.2 m/sek
Umferð:
Síðustu 10.mín:1
Frá miðnætti:4
 
 
Veðurstöðin Papey kl.00:00:00
Hiti:5,4 °C
Vindátt:SSV
Vindhraði:10 m/sek
Vindhviður:13 m/sek
 
 
Veðurstöðin Teigarhorn kl.00:00:00
Hiti:5,9 °C
Vindátt:SSV
Vindhraði:2 m/sek
Vindhviður:7 m/sek
 
 
Veðurstöðin Hamarsfjörður kl.00:00:00
Hiti:7,2 °C
Vindátt:S
Vindhraði:2 m/sek
Vindhviður:8 m/sek
 
 
Flóð og Fjara: 26.5.2013
04:01Hæð: 2.16 m
10:09Hæð: 0.25 m
16:32Hæð: 2.48 m
22:50Hæð: 0.3 m
smþmffl
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
             
Heimasíða Slökkviliðs Djúpavogs
Fjölmenningarsetur
Fiskmarkaður Djúpavogs
Ísland.is